Mamma - sagan þín
Mamma - sagan þín
Couldn't load pickup availability
Sölustaðir - uppseld í vefverslun en minnum á sölustaði:
Penninn Eymundsson, Austurstræti 18, 101 Reykjavík
Penninn Eymundsson, Kringlan, 103 Reykjavík
Bókabúð Forlagsins, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík
Hagkaup, Kringlan, 103 Reykjavík
Penninn Eymundsson, Smáralind 201 Kópavogur
Penninn Eymundsson, Strandgata 31 220 Hafnarfjörður
Penninn Eymundsson, Krossmóa 4, 260 Njarðvík
Kista, Menningarhúsið HOF, Strandgötu 12, 600 Akureyri
Hagkaup, Furuvellir 17, 600 Akureyri
Penninn Eymundsson, Hafnarstræti 91-93, 600 Akureyri
Bók sem móðir fyllir út og segir sína sögu.
Einstök útfyllingarbók sem leiðir mæður í gegnum það ferli að skrifa eigin sögu, varðveita minningar og deila visku sinni með næstu kynslóð. Bókin er með harðspjalda kápu og kemur í hulstri sem gerir hana að fallegri gjöf.
- Inniheldur 11 kafla, 174 bls. Hágæða stífur pappír til að skrifa á.
- 170 einlægar og skemmtilegar spurningar auk stuttra botnaðu spurninga
- Uppskriftir og heimilisráð til að deila á milli kynslóða
- Ljóð
- Persónulegar frásagnir frá mæðrum í atvinnu og íþróttalífinu.
Bókin er fyrir allar mæður sem vilja segja eigin sögu, varðveita minningar og deila visku sinni með barninu sínu.
Hver var móðir mín áður en hún varð móðir? er spurning sem ég fór að velta fyrir mér eftir að ég tók sjálf fyrstu sporin í móðurhlutverkinu. Mamma hafði alltaf verið “bara” mamma. Kona sem átti að vera úr stáli, styðja, hvetja, græja, redda, fæða, klæða og þar eftir götunum. Með árunum kviknuðu spurningar um hvernig lífsreynsla móður minnar hafði mótað hana - bæði sem konu og móður. Ég lagði við hlustir, fór að skilja hana betur og sjá hana sem konu með sögu sem er lengri en mín eigin.
,,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir, höfundur bókarinnar mamma - sagan þín"
Það skapast sterkari brú á milli kynslóða og fjársjóður verður til sem afkomendur kunna að finna upp á háalofti eða niðri í kjallara seinna meir.
